Jóna grjóna og Tinna kíwí :)

05.12.2006 23:11:49 / jonahulda

xdfcgvhbijn

ég er flutt yfir á jonahulda.bloggar.is og þar er einmitt nýtt blogg og nýjar eða reyndar var ég að setja inn eldgamlar myndir. Farið þangað og kvittið í leiðinni.;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 23:35:36 / jonahulda

t2

Ég elska Áslaugu....

Ég fór að dansa Afró í morgunn og verð ég framvegis með tíma í Afródansi hér á Einivöllum á 7. hæð.

Ég er búin að læra margt skemmtilegt um Gyðinga í dag. 

Mér líkar stærðfræðin... það vakna hjá mér kenndir sem ég vissi ekki að væru í mér, ótrúlegt að ég geti ekki deilt rúmi með neinum meðan stærðfræðin á hug minn allan.

Ég ætla heim til mín á Þriðjudaginn.

Ég ætla að vara alla við Culiacan, maturinn þar bragðast eins og tásafinn frá Þorgerði.

Já og Taco bell er ekki opið.

Það er laugardagskvöld en samt finnst mér vera miðvikudagskvöld.

Ég er búin að borða meira í dag en flestir gera á mánuði.

Ég var að rifja upp áðan þegar mamma kom inn á mig þegar ég var lítil, þá var ég búin að líma dömubindi á allan köttinn minn.

Ég og Áslaug fengum óvæntan gest í kvöld.

Ég hlakka til Jólabústaðarinns, tilhlökkunin heldur mér á lífi í próflestrinum.

Ég ætla að mótmæla verðhækkun áfengis með því að labba nakin niður laugaveginn, vill einhver koma með?


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 23:43:37 / jonahulda

hhææææ

JÁ þið segið það!:)

Ég fékk símtal í dag frá konu sem vinnur í kbbanka í mjóddinni..... hvað vildi hún?  tjah hún vildi bara hringja til þess að láta mig vita að einhver hefði komið með veskið mitt til þeirra.... WHOOOOODD???????8| ég stóð á gati.... ég hafði reyndar ekki séð veskið mitt í nokkra daga, en eins og vanalega bjóst ég við því að það væri einhversstaðar heima í ,,skipulaginu"  mínu eða hjá einhverri vinkvenna minna.:lol: :$

Og ég hef oft verið talin kærulaus... ppfffff.... later á það! ;)  jújú ég viðurkenni það í þetta skiptið en nú segi ég skilið við Jónu-kærulausu  (Jónu-k) þar til eftir prófin og við tekur Jóna-metnaðarfulla (Jóna-m).8)   

Næstu dagar fara í lærdóm og næstu helgi segir Jóna-m later á djamm, slekkur á símanum og lokar sig  inni með stærðfræðibók við hendina. Ástæðan fyrir að Jóna- m slekkur á símanum og þar af leiðandi lokar sig algjörlega frá umheiminum er svo þið fögru stúlkur geti ekki æst þessa yndislegu og fallegu ungu konu sem er ómissandi partur í lífi ykkar, því jú eins og þið flestar vitið er hún Jóna-kærulausa mjög auðæst og getur hún poppað upp hvenær og hvar sem er.  Við skulum því ekki taka óþarfar áhættur....

Það stefnir allt í árlega jólabústaðinn. :haha: Arnar er að reyna að heilaþvo fólkið með því að hafa hann á klaustri.  Klaustur er fallegasti og skemmtilegasti.. (shut your face víkurpakk) ... langbesti staðurinn, en samt sem áður finnst mér að við ættum að hafa hann á laugarvatni eða einhversstaðar í kringum selfoss svo við getum mökkað á jólaball! :haha: er það ekki....:P

Nú heimta ég KVITT svo ég fái nú að sjá hverjir eru að kíkja hérna við... líka þið helvítin, ég veit þið eruð nokkrir sem komið hingað! :evil: :) ddjjííí enga ókurteisi fólk... koma svo! :D

Jóna


» 14 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 00:34:24 / jonahulda

Nefrennsli...

Ég sit heima hjá Hjördísi og eins og venjulega sitjum við í tölvunum okkar að horfa á sjónvarpið hvor í sínum heimi.  Ég er búin að vera hérna hjá henni næstum alla helgina sem er best, stúlkan er búin að dekra við mig! ;)  Ég er sem sagt veik og er búin að leggja undir mig íbúðina með misgirnilegum snýtipappír og drasli.  Hversu skemmtileg er ég hehe :lol: 

Föstudagur:  Afmæli hjá stelpunum sem stóð að sjálfsögðu undir væntingum.  Mikil ölvun, skemmtilegt og margt var um manninn. 

Laugardagur:  Vinna vinna vinna, kom svo í Gullsmára til hennar Dísu minnar lagðist undir sæng og var þar, Hjördís mökkaði á djammið og kom heim HELLUÐ ásamt honum Bessa. :haha:Þegar þau komu heim klukkan 6 lagðist Hjördís á gólfið fyrir framan mig og öskraði af hlátri, það vakti mikla kátínu í hjarta mínu þar sem ég var búin að liggja andvaka og hræðast Grudge auglýsinguna sem kom uppá skjáinn á korters fresti. ;)  .

Sunnudagur: Fór í að liggja í leti í veikindum ásamt Bessa og Hjördísi sem lágu í þynnkunni, svo átum við að sjálfsögðu og sváfum.

Fer að styttast í prófin sé fram á mjög leiða daga og helgar.  Stæ próf á mánudaginn eftir viku þannig ef einhver býður sig fram að aðstoða mig þá er það vel þegið! :) ég er alveg til í að borga í annaðhvort pening eða blíðu;)... kannski óþarfi að leggjast svo lágt fyrir blóðugt stærðfræðipróf.  En ég er samt  til í að borga pening en ekki mikinn samt því ég er fátæk en alveg eitthvað :haha: haaaaa.... hljómar það ekki vel? aaanyone?... :)

Vá hvað þetta var nú skemmtileg færsla.  Alveg hreint dásamlegt að lenda í svona miklum ævintýrum sem hægt er að deila með ykkur....NOT!

later á þetta

Jóna Hulda


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 13:15:59 / jonahulda

HÚN Á AFMÆLI Í DAG

Ég ákvað að gera enn eitt slideshowið fyrst ég er nú veik heima og hef ekkert betra að gera.  :lol:

Til hamingju með afmælið Áslaug mín ;):) Hafðu það sem allra best í dag og skemmtu þér mega mega vel í kvöld!! :haha::haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 00:33:58 / jonahulda

Eiður með tvennu

hæææ...... 

Ég er orðin æst, sem er ekki frásögu færandi nema það að ég get ekki beðið eftir sumrinu.  Ég veit kannski aðeins of snemmt að byrja að iða úr spenningi fyrir því kannski réttara að hlakka til jólanna fyrst, en fyrst að það eru later á jólin hjá mér þá gengur það ekkert þannig ég ætla bara að byrja að telja daganna niður til sumarsins.  Ég þoli ekki jólin... af hverju ætli það sé samt? Finnst ykkur ekkert óþolandi allt þetta vesen sem skapast í kringum jólin, skreytingarnar byrja í október í fyrstu búðunum sem er óþolandi btw, jólalögin byrja að hljóma í útvarpinu í byrjun nóvember þannig maður er komin með leið á þeim öllum loksins þegar hátíðin byrjar, snjórinn og ófærðin sem er á þessum tíma ársins gerir það að verkum að maður er fastur heima hjá sér reyndar er snjórinn ekki ókostur alltaf því auðvitað er gaman að leika sér í honum á t.d. vélsleða, allur þessi matur sem fær mann bara til þess að fitna, jújú það er góður matur sem er gott og blessað fyrir þá sem hafa sjálfsstjórn en fyrir okkur hina þá leyfi ég sjálfri mér að nefna þetta sem ókost, maður eyðir síðustu krónunum í gjafir sem er svo ekki einu sinni fyrir mann sjálfan...... nei ókei þetta hljómaði ekki vel ég er ekki nísk og sjálfselsk herpikunta gjafirnar eru í lagi, en fyrir okkur peningalitlu námsmennina þá förum við á hausinn við að gefa vinafólki og fjölskyldu jólagjafir og svo finnst mér fólk vera farið aðeins útí öfgar í gjafavalinu gjafir þurfa ekkert að kosta ógeðslega mikið allavega er ég ánægð með allt sem ég fæ.  Á jólunum þá er maður bara í rólegheitunum með fjölskyldunni (nema milli jóla og nýárs, JÓLABÚSTAÐUR) anywayss, en það er bara ekki fyrir mig, jújú mér finnst gott að lesa um jólin bækurnar sem ég fæ í jólagjöf  og vera  með fjölskyldunni ekki misskilja mig heima er náttla best og það er æðislegt að vera hjá mömmu sína ;), en fyrir utan það þá líður mér best að vera á mökkinu einhversstaðar og eins og fjölskyldan mín er alltaf að benda mér á þá get ég ekki einu sinni verið heima heila helgi, ég er alltaf farin og þá oftast í ruglið til víkur á góðum laugardagskvöldum. Og ekki er ég skárri hér í bænum, en það finnst mér best!  Sem sagt til þess að súmma saman þá er ég ekki í jólaskapi og alls ekki jólabarn og hef ekki verið síðan ég var lítil. 

Ég ætlaði mér ekki að fara útí þessa sálma, ætlaði að æsast yfir sumrinu en oh well.... læt fylgja hér smá sjálfsmynd með....

 

 

Jóna


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 18:32:04 / jonahulda

.....

Hæ elskurnar mínar....

Mig vantar nokkrar friends seríur, ég veit að ég lánaði einhverjum þær en vandamálið er að ég man ekki hverjum. Þannig endilega COMMENT svo ég gráti mig ekki í svefn.  Því eins og þið vitið sem þekkið mig er Friends mitt líf og yndi ;) sorglegt ég veit, en mér er nokk!! :D

Mamma mín er að koma í bæinn, ég get ekki beðið eftir að hitta hana, hef ekki séð hana síðan ég fór síðast heim sem var einhvern tíman í september minnir mig... djííí má það eða?.  Mig er allavega farið að langa rosalega mikið heim til mín.  En mamma kemur og ég ætla að hjálpa henni að passa litlu ormanna hennar Láru, skötuhjúin eru víst að fara til London um helgina. *öfund*  Svo verður hittingur heima hjá Helgu B. á morgunn, ÉTIÐ verður og drukkið líklega, eruði ekki til í það fólk? Ég veit að Magga Rán mökkar austur ekki satt? en þið bjálkakvikindin eruði ekki æst?  allavega bara vera í bandi :)  Svo er orðið á götunni að Sigga sé ein heima ekki grátum við það mikið.  :D

Ég fór á basshunter í gærkvöldi með Öglu.  Ég vil samt taka það fram að við borguðum okkur ekki inn heldur fékk Agla boðsmiða, en óókei sko hvað þetta var hræðilegt! Ég bjóst að sjálfsögðu ekki við neinu af þessu kvikindi en guð minn góður hann spilaði bara þrjú lög og svo spilaði hann þau nokkrum sinnum, má það eða? svo var fólk að borga 3000 kr. inn!!!! Þetta er rugl og þessi tónlist sko... heheheh. Gaurinn ber að ofan með svart bindi hoppandi og skoppandi, þambandi bjór og syngja við techno tónlist.  Ekki alveg að gera sig verð ég að segja...djjíííí;)

Ég fann eitthvað blóðugt. Ég veit að það eiga ALLIR eftir að gera þetta og alveg örugglega með bros á vör! er það ekki?? ;) þið fólk sem komið hingað eruð allavega alveg óóótrúlega dugleg í commentinu.....NOT! :D

1. Ef þú þekktir mig ekki og mættir mér eitthverstaðar, myndiru halda að ég væri á lausu eða föstu ? 

2. Þegar þú hugsar til mín hvaða 5 hluti dettur þér í hug ? 
 

3. Hvernig sérðu þig fyrir mér í hljómsveit ?

4. Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkaru mig undir ?

5. Hvaða lag minnir þig mikið á mig ?

6. Hverjum öðrum er röddin mín líkust ?

7. Hvað giskaru að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?

8. Hversu vel telurðu þig þekkja mig ?

9. Hvernig stráka fíla ég ?

10. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma ?

11. Hvað er mest einkennandi við mig ?

12. Hvaða búðir elska ég að fara í ?

13. Lokaorð til mín ? 

Kv. Jóna prjóna


» 13 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 15:26:55 / jonahulda

slideshow

Það er svo gaman hjá okkur alltaf!! :) -Jóna grillaða-

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 22:22:41 / jonahulda

Lost and found!!

Sælar, pungsveittu gleðikonurnar mínar.....

Jæja... ég er búin að gera margar tilraunir til þess að losna við draslið í bílnum mínum.  Það er sem sagt fullt af dóti sem er búið að vera í skottinu mínu síðan í sumar og ég veit ekkert hver á hvað þannig ég ætla bara að telja draslið upp og þið elskurnar commentið bara og segið mér hvað þið eigið af þessu, eða ef þið vitið um einhvern sem á eitthvað af þessu....

  • svört sveita stígvél
  • inniskór nr.40-41 brúnir á lit
  • adidas taska
  • gamalt sléttujárn
  • sundbuxur, svartar með smá belti.
  • skítugir sokkar og naríur (mmm namm) sem ég ætla mér að henda ;)
  • vodkapeli, sem ég ætla að eigna mér :D ( ekki fullur btw)
  • afmælisgjöf til hennar Lilju sem ég held að sé vinkona Öglu
  • regnhlíf
  • hvítur jakki
  • calvin klein handklæði, hvítt og gult
  • trefill, bleikur,fjólublár og svartur
  • hvítur búbísbolur
  • annar hvítur bolur með blóðugu blómi á
  • aðrir inniskór svartir nr. ca 40-41
  • svartur bolur með böndum á (sem ég held að andrea eigi er samt ekki alveg viss)
  • og að lokum svört snyrtibudda sem ég held að andrea eigi líka, ekki satt??

Ég vona að þið kannist við eitthvað af þessu.... ég HENDI þessu ef þið segjið mér ekki að þið eigið þetta.

Annars er lítið að frétta náði samt að sofa í dágóðan tíma í nótt.... kom heim úr vinnunni í gær kl. hálf sex og ákvað að leggja mig ponku eftir svefnlitla nótt ;) af því ég þurfti að lesa ponku fyrir daginn í dag en neinei ég svaf sem sagt frá hálf sex til átta í morgunn, rumskaði ekki neitt.  Ég var ekki einu sinni að djamma á laugardaginn.  En það er alltaf best að sofa. :)

Later -Jóna


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 11:20:12 / jonahulda

Til hammó með ammó

Ég ætlaði að henda þessu inn í gær en hún Margrét Rán varð einmitt 20 ára í gær. Til hamingju með það perlan okkar ;)

Hún Magga er í HR og það þarf eiginlega ekki að segja hvernig það gengur henni, það gengur að sjálfsögðu vel og stendur hún sig þar með prýði stúlkan eins og við má búast :)  Ég kynntist henni fyrst í afmæli hjá nágranna mínum og frænda hennar þegar við vorum uuuu... litlar :lol: og ákváðum við þegar hún var að fara að mökka til egilsstaði um kvöldið að skrifast á í framtíðinni, þannig við tókum uppá því að finna litinn bút af tré og brenna hann smá í eldinum og nota sótina til þess að skrifa heimilisföngin okkar á munnþurrku, okkur datt auðvitað ekki í hug að stökkva bara inn og ná í penna... neineinei, það kom ekki til greina :D Ótrúlegt en satt þá skrifuðumst við heilmikið á, í alveg nokkur ár á eftir held ég... og erum búnar að vera vinkonur síðan! Gaman að þessu... ;) en áður en ég fer að hljóma eins og hún hafi verið að deyja frekar en að eiga afmæli þá kveð ég í bili..... Til hamingju með afmælið enn og aftur :)


Ég er ekki að búast við að myndin sjáist frekar en vanalega... en sakar ekki að prófa! ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 09:24:41 / jonahulda

Til hammó með íbúðina Agla

Kennarinn minn veikur þannig ætli ég bloggi ekki eitt stutt

Fór til Öglu í gærkvöldi að skoða íbúðina, ekkert smá flott líst mjög vel hana og loksins erum við með samastað um helgar áður en haldið er niðrí bæ eða einhvert ;) ég á víst heima í KEFLAVÍK eins þið elskulegu segið, sem þýðir 4000kr í leigubil niðrí bæ sem er víst ekki nógu gott að mér skilst, wonder why;) :S Finnst samt að þú hefðir átt að hugsa betur um vinkonur þínar og kaupa almennilega svefnsófa inní stofu, en við krössum bara uppí hjá þér og bara á milli þíns og einhvers ef í hart fer ;)

 Ég væri ekki svona þreytt núna ef ég hefði ekki lagt mig í gærdag og átt svona erfitt með að sofna í gærkvöldi.  Ég kom heim og ætlaði nú að vera svo dugleg að sofna snemma, auðvitað er það ekki hægt ef maður er búinn að sofna um daginn.  Eftir að ég var búin að liggja þarna eins og skata í einhvern tíman fékk ég þá flugu í hausinn að hugsa um EXORCISM OF EMILY ROSE sem hjálpaði mér sko EKKI að sofna og ég var andvaka ég veit ekki hvað lengi.  Ég þorði ekki að loka augunum svo þegar ég lokaði þeim þá þorði ég ekki að opna þau aftur svo var ég að sjálfsögðu byrjuð að ímynda mér að öll hljóðin utandyra og þessi pínkulitlu hljóð sem bárust úr stofunni væri djöfullinn sem væri nú að hugsa eitthvað andstyggilegt til þess að gera við hana Jónu sína.  Djííí......svo á ég eftir að kaupa lampa þannig ég þarf að standa upp til þess að slökkva ljósið og auuuuðvitað þorði ég því ekki, alveg kjörið tækifæri fyrir blóðuga djöfulinn til þess að ná mér. (ekki það að ég væri eitthvað betur sett uppí rúmi). En blóðugi gat nú líka leynst undir rúmi og gripið í löppina á mér þegar ég hefði staðið upp.  Þannig í rauninni er ég bara heppin að vera á lífi.

Ég þarf ekkert að mæta í skólann á föstudaginn, á föstudögum eru bara tungumálatímar hjá mér og allir tungumálakennarar eru að fara á námskeið.... sem þýðir drinkídrinkí dansídansí ;) eins og Agla mundi orða það.

Svo er það bara vinnan um helgina og afmæli hjá henni Möggu okkar (þar sem ekki verður drukkið Baccardi Razz) :D

segðum þetta gott í bili, kveðja Jóna grjóna


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 19:26:12 / jonahulda

Agla 19 ára gömul

HÚN Á AFMÆLI Í DAG,
HÚN Á AFMÆLI Í DAG,
HÚN Á AFMÆI HÚN AAAGGLAAAAAA
HÚN Á AFMÆLI Í DAG!!! :):):):)


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 13:55:35 / jonahulda

Gular baunir, berness sósa og karteflur

hæ.....

  • Var að vinna á airwaves um helgina.
  • Eva full á barnum í vinnunni.
  • Ég, Áslaug og Eva hellaðar á föstudaginn sökum þess að útlendingar sem við kynntumst voru mjög örlátir á fría drykki á hressó... við höldum samt að það hafi verið vegna þess að við lofuðum þeim víst að fara með þeim að sjá Gullfoss og Geysi á sunnudeginum...það varð ekkert úr því.
  • Er flutt á vellina í hafnarfirðinum og er að fara að versla mer húsgögn í herbergið mitt.
  • Þórir kærasti Siggu sofnaði á Hressó sökum ofdrykkju.
  • Þau eru dúllur.
  • Steini frændi átti afmæli á laugardaginn.
  • Áslaug fór síðust heim.
  • Birkir kýldur á íshokkíleik, missti þrjár tennur.
  • Bogmundur.
  • Surprise fyrir Öglu og Þorgerði næstkomandi miðvikudag.
  • Billa heldur uppá afmælið sitt næstkomandi Laugardag.
  • Agla á afmæli næstu helgi.
  • Ég þarf að þrífa bílinn minn.
  • Fór á Mýrina í gær... algjör snilld, mæli með henni.
  • Eva kúrum.
  • Er Davíð brósi að slá sér upp með einhverri kjellingu?.
  • Kvöldskóli í kvöld.
  • Vinna í Perlunni næstu helgi.
  • Eva ein heima næstu helgi.
  • Þorgerður ég skulda þer 1000kr.
  • Magga Rán á afmæli bráðum.
  • Þetta er dýr mánuður.
  • Mig langar í sund.
  • Agla, sorry að ég beit þig.
  • Mig langar að fara heim á Foss.
  • Agla er komin með nýtt áhugamál, það er að stökkva í sjóinn í frosti. Hún lifir enn.
  • Eva er skotin.

Vá, ekkert smá skemmtilegt blogg. 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 14:03:05 / jonahulda

Evmundur slefmundur

Eva skipaði mér að blogga, þannig ég þori ekki öðru en að hlýða! :$

Allaveganna þá var helgin afskaplega fín hún byrjaði náttla á fimmtudeginum eins og vanalega skelltum okkur niðrí bæ öll kvöldin, ég var nú reyndar bara að keyra á föstudeginum sem var mjög þægilegt, skammast mín reyndar svoldið fyrir að segja það en ég man ekki eftir því hvenær ég var síðast að keyra eða bara hvenær sú helgi var sem ég var síðast edrú, má það eða??  Á laugardeginum var étið og unnið og svo djammað um kvöldið, þetta var samt sérstakt djamm var frekar dofin eða bara steikt erfitt að gera greinarmun þar á milli! ;) Sunnudagurinn fór í það að vinna mér inn pening og svo mökkaði ég heim og steinsofnaði... Indælt að þurfa ekki að mæta fyrr en 11 á mánudögum :D ML-ingar samt heppnir að vera í fríi í dag. *öfund*

Bara mánudagur en samt er maður strax farinn að hugsa út í hvað maður á að gera næstu helgi... er einhver með hugmyndir?? :)  Mig langar allavega að elda eitthvað gott og eins og Eva segir á bjálkasíðunni að ALLIR mæti... væri gaman að líturnar, bjálkinn og fleiri fylgifiskar myndu koma, en þá er alltaf spurning um hvar það væri hægt að hafa þetta, RÉTT UPP HÖND sem er einn heima??!! :D svo væri alveg skemmtileg tilbreyting að kíkja niðrí bæ á eftir;).  Enn eins og ég segi þá er þetta bara hugmynd, mig langar líka í sumarbústað en það er frekar seint að hugsa útí það núna er það ekki?!  mig langar líka til útlanda, en mig vantar pening í það! :) komiði með hugmyndir krúttin ykkar!

Og ég vil fá kvitt, annars nenni ég þessu ekki lengur! ;)

ble, Jónus


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 00:01:05 / jonahulda

famous??

Jæja krakkar mínir... það eru ekki allir sem hafa knúsað hann Magna okkar!! 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan